Fara í efni
Heildar námskeiðslýsing

Vöruflutningar > Öryggi
Ökuland býður netnámskeið sem hægt er að taka hvar og hvenær sem er.
-
-
Hvert námskeið er opið í 48 klst. eftir innritun.
-
Engin próf eru í lok námskeiðs.
-
Ökuland notar kennslukerfi sem heitir Canvas. Það þarf ekki að hlaða niður neinum hugbúnaði í tölvur og allir algengustu netvafrar styðja Canvas.
-
Ef notast er við síma eða spjaldtölvu er mælt með smáforriti/appi sem heitir Canvas by Instructure.
-
Að námskeiði loknu sér Ökuland um skráningu í Ask, gagnagrunn Samgöngustofu og sýslumanna.
-
-
-
Bent er á mikilvægi þess að ljúka endurmenntun áður en gildistími ökuskírteinis rennur út.
-
Dreifa má námskeiðunum eftir hentugleikum á fimm ára gildistímabil ökuréttindanna.
-
Tákntalan 95 á bakhlið ökuskírteinis gefur til kynna að ökumaður hafi réttindi til aksturs í atvinnuskyni.
-
Einstaklingum er bent á möguleika á námsstyrk stéttarfélaga og fyrirtækjum á styrki úr starfsmenntasjóðum.
-
Fyrirtæki og stofnanir sem óska eftir reikningsviðskiptum, vinsamlega hafið samband við Ökuland áður en innritun fer fram.
-
Athugið að þegar ökuskírteini er endurnýjað þarf að skila inn læknisvottorði.
Uppsetning endurmenntunar samkvæmt reglum Samgöngustofu:
-
Ljúka þarf fimm endurmenntunarnámskeiðum áður en aukin ökuréttindi(í flokkum C1/C & D1/D) eru endurnýjuð. Mælt er með að dreifa þeim á fimm ára gildistíma ökuréttinda.
-
Námskeiðunum er skipt í þrjá hluta; Umhverfi – Lög og reglur & Öryggi og nú þarf að taka að lágmarki eitt námskeið úr hverjum hluta. Hin tvö eru valfrjáls og mega vera úr hvaða hluta sem er
-
Ekki er lengur um að ræða kjarna, valkjarna og val.
-
Nú er skylda að eitt af þeim fimm námskeiðum sem bílstjórar taka innihaldi verklegan hluta, til dæmis akstursöryggisnámskeið, verklegt vistakstursnámskeið, námskeið í vetrarakstri eða verklega skyndihjálp.
-
Nánari upplýsingar um endurmenntun atvinnubílstjóra má finna á vef Samgöngustofu