Námskeið

Lög og reglur - Endurmenntun/KJARNI

Tímamörk: 2 dagar

18.500 kr Innrita

Heildar námskeiðslýsing

    • Ökuland býður netnámskeið sem hægt er að taka hvar og hvenær sem er. 
    • Hvert námskeið er opið í 48 klst. eftir innritun. 
    • Engin próf eru í lok námskeiðs.
    • Ökuland notar kennslukerfi sem heitir Canvas. Það þarf ekki að hlaða niður neinum hugbúnaði í tölvur og allir algengustu netvafrar styðja Canvas. 
    • Ef notast er við síma eða spjaldtölvu er mælt með að sækja smáforrit/app sem heitir Canvas Student.
    • Að námskeiði loknu sér Ökuland um skráningu í Ask, gagnagrunn Samgöngustofu og sýslumanna. 
    • Askur - Innskráning
    • Ökuland er viðurkenndur námskeiðshaldari.
    • Bent er á mikilvægi þess að ljúka endurmenntun áður en gildistími ökuskírteinis rennur út.
    • Dreifa má námskeiðunum eftir hentugleika á fimm ára gildistímabil ökuréttindanna. 
    • Tákntalan 95 á bakhlið ökuskírteinis gefur til kynna að ökumaður hafi réttindi til aksturs í atvinnuskyni.
    • Einstaklingum er bent á möguleika á námsstyrk stéttarfélaga og fyrirtækjum á styrki úr starfsmenntasjóðum.
    • Athugið að þegar ökuskírteini er endurnýjað þarf að skila inn læknisvottorði. 

 

Uppsetning endurmenntunar skv. reglum Samgöngustofu:

A. Kjarnanámskeið(skylda) eru:

Lög og reglur, Umferðaröryggi/Bíltækni og Vistakstur/Öryggi í akstri

B. Valkjarnanámskeið(annað hvort eða bæði eru valin):

Vöruflutningar (fyrir C1/C)  og Farþegaflutningar (fyrir D1/D)

C. Valnámskeið:

Fagmennska og mannlegi þátturinn. Þetta námskeið getur verið í vali sem fimmta námskeiðið.

Námskrá endurmenntunar atvinnubílstjóra má finna á vef Samgöngustofu